Jóla Jóla
7.12.2008 | 12:38
Í gær var Nordicsea með jólaboð fyrir okkur starfsfólkið. Mættum við klukkan 7 og var mikið um dýrðir á Suðurgötunni. Búið var að gera þetta að svaka kósý Borðin voru hlaðin veigum (sem Biggi hafði skipulagt) og eðalvínum og smakkaðist þetta svakalega flott. Þetta var svakalega gaman. Fór maður nú að sjá fólkið sem maður hefur bara talað við í síma. Þetta reyndist vera mjög svo skemmtilegt fólk. Skemmtum við okkur konunglega. Svo kom Karl Örvarsson og skemmti fólkinu með hjálp Gústa sem lét sitt ekki eftir liggja. Nordicsea Takk fyrir mig þetta var æðislegt.
Athugasemdir
Já, þetta var rosa gaman verðum að gera meira svona skemmtilegt saman Takk kærlega fyrir mig, ég skemmti mér mjög vel
Bára (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 06:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.